Áhorfendastúka - flott fyrir bæjarhátíðir, tónleika, íþróttaviðburði
Til sölu 644 sæta áhorfendastúka sem meðal annars var notuð í Idol Stjörnuleit auk annarra viðburða. Stúkan var tekin í notkun árið 2004 og hefur ávallt verið vel við haldið og geymd við bestu skilyrði. Hún er 28 metrar á breidd og um 13 metrar á dýpt og þekur því um 360 fm. Hentug stúka fyrir til dæmis bæjarhátíðir, tónleikahald, fyrirlestra, golfmót, íþrótta- og sjónvarpsviðburði, reiðhöll eða aðrar samkomur þar sem vel þarf að fara um áhorfendur og útsýni sem allra best fyrir hvern og einn. Stúkan er smíðuð af breska fyrirtækinu Arena seating sem í yfir 40 ár hefur verið fremst á sínu sviði. Stúkur frá þeim eru m.a. notaðar fyrir Master Snooker UK, Britain´s Got Talent, The Voice, X Factor, Brit Awards og fyrir tvo síðustu Ólympíuleika svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að setja upp minni útfærslu af stúkunni og því ekki nauðsynlegt að setja öll sæti upp í einu. Stúkan er tilbúin til afhendingar en áhugasamir hafi samband í síma 8981000.
Fylgdu okkur á FB á www.facebook.com/efnisveitan
Spörum og endurnýtum.
Nánar um framleiðandann - https://arenagroup.com/products/seating/