Smáhýsi Nr. 575 - 29 fm. endahús - skrifstofa - tengihús
Til sölu smáhýsi sem notað var í hin ýmsu verkefni þó mest stórframkvæmdir t.d. við virkjanir.
Nú eru breyttir tímar með nýjum gerðum af smáhýsum sem leysa eldri útgáfur af hólmi.Þetta smáhýsi er spennandi verkefni til að breyta í t.d. sumarhús, heilsárshús, golfskála, gistiaðstöðu, gestahús eða veiðihús.
Tilvalið til að klæða að nýju og þannig gerbreyta ásýnd en að auki er mjög einfalt að tengja smáhýsið við fleiri samskonar einingar.
Grind úr timbri sem byggt er á stálramma. Það er einangrað með ull og þak með olíudúk. Auðvelt er að flytja smáhýsið þar sem festingar eru til staðar.Smáhýsið er 9.60 metrar á lengd og 3.05 metrar á breidd og 3.10 metrar á hæð.
Alls 29,3 fermetar.
Verð 800.000 þús. án vsk. eða 992.000 kr. með vsk.
Fjórir reynslumiklir aðilar eru reiðubúnir að gera tilboð í að flytja smáhýsið hvert á land sem er. Nýlegt verðdæmi 450 þús + vsk. frá Rvk til Blönduós.
Tveir reynslumiklir aðilar eru reiðubúnir að gera tilboð í teikna upp og gera burðarþolsteikningar vegna umsókna fyrir byggingarleyfi.
Nánari upplýsingar veitir Hugi í síma 8981000
efnisveitan@efnisveitan.isFylgdu okkur á www.facebook.com/efnisveitan
Endurnýtum & spörum