Hurð & gluggi frá Byko - Umframefni/Ónotað
Hurðin er með föstu hliðargleri, hönnuð fyrir bjart og snyrtilegt íbúðar- eða sumarhúsnæði þar sem óskað er eftir góðri birtu og traustri opnanlegri lausn. Einingin er úr samlímdri furu og fullmáluð í RAL 9010, sem gefur henni hreint og tímalaust yfirbragð. Hurðin opnast út og hentar vel sem svalahurð eða útgönguhurð út á pall, svalir eða verönd. Samsetning hurðar og hliðarglers skapar rúmgóða og glæsilega heild sem eykur birtuflæði og nýtanleika rýmisins.
Tæknilegar / ítarlegri upplýsingar
• Framleiðandi / kerfi: Bitus-ISL / Byko
• Gerð: Svalahurð með föstu hliðargleri
• Efni: Samlímd fura 115
• Litur: RAL 9010
• Glerjun: 6-12-4, [Rw+Ctr = 30 dB]
• Hengslun: Svalahurð vinstri út opnandi
• Mál: H220 x B100 sm. á hurðareiningu
• Mál: H133 x B76 sm. á hliðargleri / topphengdum glugga samkvæmt tilboði
• Heildarsamsetning: Hurð og tengt hliðargler í einni samsettri einingu
• Uw gildi: 1,6 W/m²K
• Þyngd hurðar: 75,86 kg
• Þyngd hliðarglers / glugga: 38,89 kg
• Gler stærðir 768 x 1125 mm og 578 x 1148 mm fyrir einstök gler.karmtenging, 10 mm fúga milli eininga, sólbekkjarauf í botnstykki og festingar
Ástæða sölu er röng opnun á hurð fyrir hjá eiganda.
Tilbúið til afhendingar.
Staðsett í skeifunni Reykjavík
IPA 23285 svalaskrá, FIX 8307 handfang, IPA 12197 galvanhúðaðarlamir - ljósgráar.
Gler: Einangrunargler með „heitum“ kanti á milli glerja (ekki ál).
Verð 190.000 kr án vsk. fyrir allt saman.
Verð 235.600 kr. m/vsk
Fyrir nánari upplýsingar/kaup fylla út fyrirspurnarform eða í síma 8631970
Fylgdu okkur á Facebook
Endurnýtum & spörum






