Kælieyja ZOIN Flatty (2023)
Til sölu er kælieyja af gerðinni ZOIN Flatty 129 Ventilata sem hentar vel fyrir matvöruverslanir, bakarí, kjötborð eða aðrar verslanir sem selja kælivörur. Um er að ræða lága kælieyju með gleri að ofan sem hentar sérstaklega vel fyrir vörur sem eiga að vera vel sýnilegar fyrir viðskiptavini. Kælieyjan er með loftræstri kælingu sem tryggir jafnt hitastig og góða kæligetu. Slíkar einingar eru algengar í verslunum fyrir tilbúnar vörur, eftirrétti, kjöt, fisk eða grænmeti. Kælieyjan vinnu stjálfstætt og er plug-in-play og er með modul-kerfi og hægt að raða mörgum einingum saman í lengju eins og sést á mynd.
Tæknilegar / ítarlegri upplýsingar
• Framleiðandi: ZOIN Srl, Ítalía
• Model: Vetrina Flatty 129 Ventilata
• Kælimiðill: R290
• Rafmagn: 230 V / 50 Hz
• Afl: 570 W
• Kælikerfi: Ventilated (loftkæld dreifing)
• Framleiðsluár: 2023
• Notkun: Kælivitrína fyrir matvörur / verslanir
• Gerð: Lág kælivitrína með gleri (serve-over / self-service)Staðsett í póstnr. 201 Kópavogi
Afhendingartími um páskana, mánaðarmótin mars/apríl
Verð 250.000 kr. án vsk.
Verð 310.000 kr. m/vsk.Nývirði 700.000 kr. án vsk.
Nývirði 868.000 kr. m/vsk.
Nánari upplýsingar, fylla fyrirspurnarform eða í síma 8631970
Fylgdu okkur á Facebook
Endurnýtum & spörum






