Vitrum gastró kæliborð með undirskáp frá BVT, B86sm.
Vandað Vitrum kæliborð úr ryðfríu stáli með opnum brunni að ofan fyrir GN-bakka og kældum undirskáp með einni hurð.
Borðið hentar vel sem vinnslu- og framsetningarborð fyrir álegg, salat, grænmeti eða nammibar og annað hráefni sem þarf að halda köldu við afgreiðslu.
Kæliborðið er lítið notað, eins og nýtt og kjörið fyrir veitingastaði, mötuneyti, bakarí eða verslanir.
- Framleiðandi: Vitrum
- Model: CTV08. 1. M. B
- Framleitt í nóvember, 2023.
- Söluaðili: BVT
- Hitastig: +2 til +6 °C.
- Mál: B86 x D70 x H90 sm.
Ath. myndir af gastróbökkum með nammi/grænmeti eru eingöngu til að sýna notagildi og er ekki sama eining og er til sölu.
Staðsett hjá okkur í Skeifunni 7, opið alla virka daga 10-16.
Verð 90.000 kr. án vsk.
Verð 111.600 kr. m/vsk.
Nývirði um 851.800 kr. án vsk.
Nývirði um 1.056.232 kr. m/vsk.
Nánari upplýsingar, fylla fyrirspurnarform eða í síma 8631970
Fylgdu okkur á Facebook
Endurnýtum & spörum






