Hleðsluborð – hleðslulausn fyrir símana
Stílhreint og hentugt hleðsluborð sem býður upp á bæði þráðlausa hleðslu og hleðslu með snúrum. Fullkomið fyrir biðsvæði, móttökur, kaffistofur eða verslanir þar sem gestir og starfsmenn geta hlaðið tæki sín á einfaldan hátt.
Borðið er útbúið með Lightning, USB-C og Micro-USB tengjum ásamt þrádlausri Qi-hleðslu í miðjunni. Tengt beint í rafmagn með falinni snúru niður í grunninn.
Tæknilegar upplýsingar:
Gerð: Hleðsluborð fyrir síma
Hleðslumöguleikar: Qi prádlaus hleðsla, USB-C, Lightning, Micro-USB
Litur: Svartur fótur með grænblárri toppplötu
Tenging: 230V rafmagn
Mál: H110 x Ø60 sm
Staðsett hjá okkur í Skeifunni 7, opið alla virka daga 11–13.
Verð: 110.000 kr. án vsk.
Verð: 136.400 kr. m/vsk.
Nánari upplýsingar, fylla fyrirspurnarform eða í síma 8631970.
Fylgdu okkur á Facebook
Endurnýtum & spörum








